|
Mambo og Joomla eru vinsælustu vefumsjónarkerfi Internetsins. Það er ekki að ástæðulausu, þau eru margverlaunuð fyrir frábæra hönnun. Helstu kostir þessara kerfa eru í fyrsta lagi að þau eru frí og frjáls. Það kostar sem sagt ekkert að sækja þau á vefnum og fólki er frjálst að gera því sem næst hvað sem er með þau nema að selja kóðann.
Annar helsti kosturinn er að útlitshönnunin er aðskilin frá efninu. Útlitið er sett upp með skapalóni (template) og hægt er að skipta um skapalón án þess að hagga innihaldi vefsins á nokkurn hátt. Aðrir þættir hafa t.d. með vistun efnisins í gagnagrunni að gera. Vefumsjónarkerfi eru nefnd Content Management Systems á ensku og yfirleitt skammstafað CMS. Þetta kerfi er ekki gert fyrir "einnar síðu típu" af heimasíðum. Notendur hafa mikla stjórn á birtingu efnisins, uppröðun og öðru en á móti kemur að allir fínu kostirnir leiða til hærra flækjustigs. Það tekur því nýja notendur nokkra fyrirhöfn að læra á kerfið. Það er reyndar hægt að stilla málum þannig upp gagnvart völdum notendum að þeir sjá aldrei ofangreint flækjustig því þeir skrifa bara efni og aðrir sjá um að raða því. |