|
Linux er í raun afbrigði af hinu margrómaða Unix stýrikerfi en var
þróað upphaflega fyrir Intel örgjörfa. Linux hefur verið aðlagað öðrum
örgjörfum síðan en Intel örgjörfarnir eru megin vígi þessa vinsæla
stýrikerfis. Árangur og útbreiðsla Linux stýrikerfisins er með
ólíkindum. Ekkert annað stýrikerfi er jafn útbreytt og mikilvægt fyrir
Internetið.
Fyrstu verkefni Linux fyrir okkur voru í formi eldveggja og
vefþjóna en það eru langsamlega algengustu hlutverk Linux
stýrikerfanna. Síðan þá höfum við tekið í notkun fjölda véla þar sem
boðin er ýmis þjónusta svo sem eins og vefhýsing, póstþjónusta,
gagnagrunnar og beinar (routers).
|