pic41.jpg
Forsíða
Tungumál - Language - Parle

Stýrivélanet Síldarvinnslunnar Prenta Netfang

Í nóvember 2006 fengum við það verkefni að tengja stýrivélanet fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Helguvík við almenna upplýsinganet félagsins. Þetta varð að gerast þannig að sjálfstæði og öryggi stýrivélanetsins væri ekki ógnað á nokkurn hátt.

Stýrivélanetið er notað til að stýra framleiðsluvélunum og þar má því ekkert út af bregða í hita leiksins. Við höfðum um nokkurt skeið verið að skoða Open Source hugbúnað frá Vyatta fyrir svipuð verkefni og sáum að sú tækni var tilvalin til að leysa þetta mál.

Notuð var gömul tölva sem hafði áður verið borðtölva starfsmanns en hætt að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru í þeim efnum. Slíkar tölvur eru oft tilvaldar í verkefni af þessu tagi því afl þeirra er í raun yfirdrifið fyrir þetta hlutverk. Uppsetningin í Helguvík heppnaðist frábærlega en starfsmenn verkfræðistofa sem forrita stýrivélarnar höfðu nú öruggan aðgang að stýrivélunum hvaðan sem er af internetinu (í gegn um VPN gátt almenna netsins). Leikurinn var svo endurtekinn fyrir Seyðisfjörð og í apríl 2007 var bætt við gáttum á 2 stýrivélanet á Norðfirði einnig.

 
< Fyrri   Næsta >
Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...