| Ólafur Garðarsson |
|
|
|
|
CURRICULUM VITAENafn: Ólafur Garðarsson Fæddur: Keflavík, 3/9 1962 Starfsferill1990 - nú: Framkvæmdastjóri og aðaleigandi Íkon ehf. - Forritun, kerfisþjónusta og fyrirtækjarekstur. Hluta af verkefnalista má sjá hér. 2003 - nú: Uppbygging á vefhýsingarþjónustunni edal.net. Byrjuðum á að selja aðgang að vefþjónum sem aðrir ráku en sáum fljótlega að best væri að reka okkar eigin vefjóna en vista þá í gagnaverum. Þetta verkefni hefur kallað á að læra ýmislegt um nafnaþjónustur, vírusvarnir, póstvarnir og ýmis önnur öryggismál. Einnig vefumsjónarkerfi og slíkt, rekstur póstþjóna, afritunarkerfa ofl. Reynsla af rekstri netkerfa, gagnagrunna ofl. kom að miklum notum í þessari uppbyggingu. Þjónustan er nú með um 1000 lén á yfir 200 vefsvæðum viðskiptavina og hefur færst úr að vera aukabúgrein í rekstrinum yfir í að vera burðarás rekstursins. 1998 - 2003: Umsjón upplýsingakerfa SR-mjöl hf, í fyrstu í fjartengingu að mestu en eftir 2001 í allt að fullu starfi á köflum. Útfærði and stjórnaði uppsetningu á víðneti (WAN) sem tengdi allar 5 verksmiðjur félagsins hringinn í kring um landið. Byggði upp kerfisveitu (Terminal Services) og uppfærði eldri kerfi í miðlæga Active Directory stýrða þjónustu. Sá um viðhald og uppfærslur á Lotus Notes tölvupóstkerfi og Lotus Notes GoPro þjónustu. SR-mjöl var sameinað Síldarvinnslunni hf árið 2003 í kjölfarið voru upplýsingakerfin sameinuð af Ólafi og Jóni Birni, kerfisstjóra SVN. Ólafur hefur veitt Síldarvinnslunni kerfisþjónustu, ráðgjöf og forritunarþjónustu til dagsins í dag. 1999 - 2001: Resort Properties Tenerife, XL Hotels & Resorts, RCI og RMS Inc. London. Smíði Oracle gagnagrunns fyrir Timeshare sölukerfi með Omnis Studio notendaviðmóti. Stuðst var við kerfismótun þar sem viðskiptareglur eru aðskildar frá notendaviðmóti en notendaviðmót var forritað með hlutbundnum aðferðum (Object Oriented). Einnig yfirferð og ráðgjöf í framtíðarstefnu upplýsingakerfismála hjá fyrirtækjunum þremur sem starfa undir hatti RMS Inc London. 1996 - 1999: Blyth Software Inc USA (seinna Omnis Software Inc og núna Tiger Logic) - Byrjaði í Omnis 7 tækniaðstoð í 3 mánuði undir stjórn Frank Ammiro og Negin Hakimian. Var færður seinna í kerfisþróun til að forrita Igor og önnur innri kerfi fyrirtækisins. Vann í fyrstu með innri gagnagrunna í Sybase en færði síðar öll kerfi yfir í Oracle. 1984 - 1985: Plastos hf. Byrjaði sem vaktstjóri og varð seinna tæknimaður á rafeindaverkstæði. Vakstjórn í plastpokaframleiðslusal, viðgerðir á framleiðsluvélum. Uppsetning og viðgerðir á rafeindavogum. 1983 - 1984: Alternator hf. Keflavík. Tæknimaður við hönnun og smíði rafeinda umbreytis (Solid State Electronic Inverter) frá breytilegri tíðni og spennu alternatora tengda ljósavélum eða aðalvélum skipa, yfir í stöðuga 50Hz 220V rafmangsveitu. 1983: Landsíminn (nú Síminn hf). Radíóleiðadeild. Viðgerðir og viðhald á radíó- og örbylgjusamböndum. 1980: Sumarvinna hjá Steypustöð Suðurnesja. 1974 - 1983: Sumarstörf í útgerð og fiskvinnslu föður míns og við upp og útskipun hjá Skipaafgreiðslu Suðurnesja. Menntun1988 Tæknistúdent - Tækniskóli Íslands 1985 Sveinspróf í Rafeindavirkjun - Iðnskólinn í Reykjavík 1980 Járniðnaðarbraut - Fjölbrautaskóli Suðurnesja Ýmis námskeið og prófNýsköpunarsjóður - Námskeið í gerð viðskiptaáætlana, Tungumál - TOEFL og SAT, Gagnagrunnar - Oracle PL/SQL, Oracle Backup and Recovery, Tónlist - Píanó og Orgel, Dans - Jazz Ballett , Köfun - PADI Advanced Diver. ÁhugamálTækni og vísindi, köfun, stangveiði, körfubolti, ferðalög, bókmenntir, tónlist, leiklist, kvikmyndir, garðrækt, náttúruskoðun.
|
| < Fyrri |
|---|








Ólafur er einn af stofnendum Íkon ehf. Ólafur hefur starfað við hugbúnaðarþróun og kerfisþjónustu frá 1985 en hans formlega menntun er Rafeindavirkjun og útskrifaðist hann með sveinspróf 1985. Eftir mörg og margvísleg verkefni á Íslandi við hugbúnaðarþróun og stofnun Íkon 1988 tók hann árið 1996 að sér verkefni við að þróa innri gagnagrunna Omnis Software Inc. í Bandaríkjunum. Hann kom aftur til Íslands 1999 og fór fljótlega til Tenerife þar sem honum bauðst að þróa kerfi til utanumhalds hótelreksturs. Það verkefni tók um tvö ár af og á en síðan þá hefur Ólafur einbeitt sér að uppbyggingu Íkon ehf. 2005 fjárfesti fyrirtækið í húsnæði að Nýbýlavegi 6 þar sem starfsemin er staðsett núna.