| Rafrænar sendingar til TR |
|
|
|
Leiðbeiningar um hvernig gera eigi rafræna skýrslu yfir reikninga gefins tímabils til að senda til Tryggingastofnunar Ríkisins.
Skýrsluna má finna unir "Prenta..." valmyndinni (Skrá -> Prenta...).
Veljið "Uppgjör reikninga á rafrænu formi" og smellið á "Prenta..." eða einfaldlega tvísmellið á línuna.
Setjið inn dagsetningar tímabilsins sem skýrslan skal ná yfir (einn mánuður að jafnaði) og smellið svo á "Prenta".
Veljið "Skrá á disk" í ofangreindri valmynd. Einnig má velja "Skjár" til þess einfaldlega að sjá skýrsluna en hún er á svokölluðu xml fromi. Ef "Klemmuspjald" er valið er möguleiki að skeyta skýrslunni í annað kerfi. Þetta gæti komið til ef TR breytir viðtöku sinni á skýrslunni og gefur kost á að hreinlega skeyta henni inn í textareit í vafra. Þegar þetta er skrifað er sá möguleiki ekki inni og því best að vista skýrsluna í skrá og senda TR á disk eða minniskubb.
Næsta skref er að vista skrána en mikilvægt er að átta sig á hvar hún vistast svo hægt sé að finna hana í skrárkerfi tölvunnar og afrita yfir á disk eða annað. TR vill alls ekki fá skrána senda með tölvupósti af öryggisástæðum. Einfaldast er að vista skrána í Doctor möppuna en hún er á í rót megin harða disks tölvunnar, venjulega C drif. Gott er að hafa sérstaka möppu þar fyrir þessar skrár og nefna þær með ártali og mánuði eins og sérst á myndinni. Nafnið skal ávalt enda á .xml Þegar vistun er lokið skal afrita skána yfir á CD disk (brenna), minnislykil eða floppy disk og senda TR.
|










