pic44.jpg
Home
Tungumál - Language - Parle

IE7 með ýmsa galla Drucken E-Mail
There are no translations available

Internet Explorer 7 er ekki alveg sú framför sem vonast var eftir. Nokkuð af göllum hafa komið í ljós í framsetningu (rendering) þar sem viðmótseiningar vefsíðu eru t.d. að þvælast útfyrir ramma sína ofl. Vefhönnun hefur því verið flækt enn frekar með þessu framtaki Microsoft en flækjustigið á þessu sviði er hátt fyrir.

Meðhöndlun IE7 á sjálfmerktum rafrænum skírteinum er óþarflega hastarleg þar sem notendur eru varaðir við eins og um glæp sé að ræða. Rafræn skýrteini í vöfrum eru fyrst og fremst ætluð til dulkóðunar samskipta á opnum netum og verjast þar með hlerun þriðja aðila, sjálfmerkt skírteinu sinna þessu hlutverki alveg jafn vel og önnur. Auðkenni vefsíðu/léns er mikilvægt en notendur hafa margar aðferðir til að sannreina slíkt umfram þessi skírteini. Varðandi upprunna skýrteinis ætti að vera nóg að koma með aðvörun eins og var í IE6 og er í Firefox og Opera. Opera og Firefox vafrarnir eru ennþá töluvert framar en IE7 að flestu leiti.  Samanburður vafra

 

 
< zurück   weiter >
Home Project History About us News and annoncements Search site