pic47.jpg
Maison
Tungumál - Language - Parle

Kerfisveita: Hvernig sé ég kostnaðarmyndina? Version imprimable Suggérer par mail
There are no translations available

Bera þarf saman sambærilega hluti. Byrjunarkostnaður við eigin kerfisþjónustu er hár en honum þarf að dreifa á nokkur ár til að sjá árlegan eða mánaðarlegan raunkostnað. Taka þarf inn í dæmið vaxtagjöld hvort sem tekið er lán fyrir fjárfestingunni eða ekki. Einnig er mikilvægt að gera sér grein fyrir vinnunni sem fer í uppsetningu netþjóna. Hrátt verð vélbúnaðar og hugbúnaðar er oftast nær 1/3 til 1/2 af raunkostnaði við uppsetninguna og getur verið mun meiri ef um er að ræða margar þjónustur. Algengt er að borgað sé um 500 þús. fyrir netþjóninn með spegluðum diskum, hugbúnaði, afritun og öðru góðgæti en svo fari allt frá 300 til 700 þúsund í uppsetningarvinnu og aðlögun. Ef við gerum ráð fyrir efri mörkunum á þessu eru það um 1.200 þús. + fjármagnskostnaður sem dreifist á 5 ár í endingu/úreldingu. 1.500 þús. / 5 = 300 þús./ár. = 25.000 / mán.

Þeir kostnaðarliðir sem eru til staðar hvort sem kerfisveitan er valin eða ekki eru eftirfarandi:

  • Internettenging
  • Hugbúnaðarleyfi - (notendahugbúnaður eins og Office ofl.)
  • Útstöðvar (reyndar er möguleiki að komast af með ódýrari útstöðvar með kerfisveitu)
  • Jaðartæki (prentarar, skannar o.s.frv.)
  • Viðhald útstöðva og jaðartækja (búnaður á nærneti bilar eftir sem áður en hugbúnaðarbilanir ættu að vera færri).
  • Vírusvarnir (verja þarf útstöðvar fyrir vírusum hvort sem póstur er tekinn inn þar eða ekki, hugsanlega mætti komast hjá þessu þó með því að loka almennum aðgangi útstöðva að interneti og treysta alfarið á kerfisveitu aðganginn).

Samanburðarhæfur kostnaður er því eftirfarandi:

  • Fjárfesting í netþjóni berist saman við leigu/afnot af netþjóni (netþjónn endist oftast í 5 til 10 ár en miða skal við 5 ár í endingu/úreldingu).
  • Gjöld fyrir plássnotkun þarf að vera inn í ofangreindu.
  • Fjárfesting í skjáhermi (Terminal Server) berist saman við leigu af skjáhermi (ef það á við).
  • Sérstök tengigjöld eru oft í viðbót við internet-samband.
  • Vírushreinsun tölvupósts og ruslpóstsíun.
  • Afritunarkostnaður (spólur og tæki vs. afritun kerfisleigu)
  • Eldveggur (ef notuð er kerfisveita eru nánast alltaf minni kröfur um varnir eða sérstakan aðgang á nærneti).
  • Taka ber tillit til að ending útstöðva getur lengst hvað varðar úreldingu í kerfisleigu. Lengið því líftíma útstöðva úr 3 árum í 4 ár að meðaltali í kerfisleigu.


 
< Précédent
Maison Project History About us News and annoncements Search site