|
There are no translations available
Það var fyrir nokkrum árum að í fyrirtæki sem ég starfaði í að okkur vantaði hugbúnað í framleiðslustýringu. Eftir að hafa skoðað það sem var á boðstólum og talað við nokkur fyrirtæki sem voru að nota þesskonar hugbúnað gerðum við okkur ljóst að við stæðum frammi fyrir vandamáli. Þeir sem voru með hugbúnað í notkun voru ýmist búnir að gefast upp eða í þann veginn að gefast upp. Gríðarlegur kostnaður sem vonlaust virtist vera að átta sig á hvort nokkur sinni tæki enda var að fara illa með þessi fyrirtæki.
Datt okkur þá í hug að kanna fyrirtækið Íkon en af þeim hafði ég góða reynslu. Hafði það að vísu verið á Machintosh en ég treysti þeim til þess að gefa okkur góð ráð. Það stóð að sjálfsögðu ekki á því. Íkon treysti sér í verkefnið því að sá gagnagrunnur sem þeir höfðu mest notað var líka kominn í Windows umhverfið. Með öðrum orðum Íkon myndi geta skrifað fyrir okkur þennan hugbúnað sem og þeir gerðu. Kostnaður var vel ásættanlegur, kerfið kom ótrúlega vel út strax í upphafi og hefur verið mikið notað og er enn. Mjög þægilegt fyrir starfsfólk og þarf ekki neina sérfræðinga til þess að umgangast það. Ég hef reynslu af fjárhagsbókhaldi, verkbókhaldi,launabókhaldi,markaðsbókhaldi og núna til nokkurra ára þessu framleiðslu kerfi frá Íkon. Öll kerfin eru þægileg og auðveld og myndi ég hiklaus mæla með Íkon þegar að hugbúnaði eða ráðgjöf kemur. Rögnvaldur Pálmason RP Consulting 897 7682 |