pic4.jpg
Maison arrow About us arrow Testemonials de client arrow SR-mjöl - Hlynur Jónsson Arndal
Tungumál - Language - Parle

SR-mjöl - Hlynur Jónsson Arndal Version imprimable Suggérer par mail
There are no translations available

SR-mjöl hf logo
Ólafur Garðarsson hefur komið að tölvumálum SR-mjöl hf, áður Síldarverksmiðjur ríkisins, frá 1990. Upphaflega var hann fenginn til að skrifa forrit sem heldur utan um framleiðslu fyrirtækisins og gæðaeftirlit. Þetta forrit hefur verið nefnt Arndís og er mikið notað í dag hjá verksmiðjustjórum félagsins, efnafræðingum og markaðsfólki. Forritið hefur reynst afar traust og vinnusparandi. 

Forritið heldur utan um hráefnið, hvaðan það kom, úr hvaða skipi, hitastig þess við komu, vinnslu afurða úr því, gæðaflokka afurða og vöruflokkanir. Ennfremur prentar það út öll gögn varðandi útskipanir. 

Eftir að Ólafur lauk vinnu við Arndísi hefur hann haldið áfram að þróa kerfið og er það eitt það fullkomnasta í fiskimjölsiðnaðinum í dag. Ólafur hefur verið til ráðgjafar við uppbyggingu tölvukerfa SR-mjöls hf. á fjárhagssviði, hann stjórnar uppbyggingu kerfa úti á landi og samtengingu þeirra.

Við hér hjá SR-mjöli hf. gefum Ólafi okkar bestu meðmæli. 

Reykjavík í september 2002

Hlynur Jónsson Arndal
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs 

 
< Précédent   Suivant >
Maison Project History About us News and annoncements Search site