|
Vísir hf á vegum Leiðir ehf - MPS innlestur |
|
|
|
There are no translations available
 2005-2006. Íkon ehf vinnur í mörgum verkefnum fyrir Leiðir ehf sem undirverktaki og á það einnig við í þessu tilfelli. MPS kerfið frá Marel les stykkjavigtun frá Marel stykkjavoginni en Vísir vantaði að fá þær upplýsingar yfir í framleiðslukerfið frá Leiðum.
MPS kerfið vistar gögnin í Informix gagnagrunni en framleiðslukerfi Vísis er vistað í MS-Sql Server. Byggja þurfti brú þarna á milli og nýta það sem til var fyrir hjá Vísir og á þann hátt að starfsmenn skildu samhengið. Eldra innlestrarkerfið var forritað í Visual Basic og því lá beint við að prjóna þessa viðbót við það kerfi. Hanna þurfti fyrirspurn sem tók gögnin saman svo þau væru skiljanleg fyrir framleiðslukerfið og skrifa svo í grunn þess. Verkefnið gekk upp í alla staði og nýtist á hverjum degi við að lesa frá MPS yfir í framleiðslukerfi Vísis. |