|
HRM rannsóknir og ráðgjöf ehf |
|
|
|
HRM er ungt fyrirtæki en hefur náð miklum frama á stuttum tíma á sínu sviði. Íkon ehf tók að sér að hanna kerfi (Könnuður) fyrir HRM til að framkvæma rafrænar kannanir á vefnum og hafa þúsundir tekið þátt í könnunum þeirra. Ein slík könnun var gerð meðal viðskiptavina Íkons um mánaðarmótin ágúst-sept. 2006 en hún hefur hjálpað okkur mikið að taka stefnuna í þjónustunni við okkar viðskiptavini.
Frá því Könnuður fór af stað hefur nánast stöðugt verið unnið í að bæta kerfið og þegar þetta er skrifað eru framundan enn frekari viðbætur sem eiga að þjóna óskum viðskiptavina HRM. HRM hefur á stuttum tíma unnið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð og áreiðanlega þjónustu og við erum mjög ánægðir að geta bendlað okkur við þann árangur. |