| Resort Properties - Tenerife |
|
|
|
There are no translations available 1999 - 2000. Hönnun og smíði sölukerfis fyrir sölu á Time Share hóteleiningum. Byggt á vensluðum Oracle gagnagrunni og viðskiptareglur þróaðar í PL/SQL. Eldra kerfi byggt á Omnis gagnagrunni var hætt að ráða við mikið magn upplýsinga og flókin tengsl. Farið var í að skrásetja kerfið og skipuleggja þær breytingar sem þyrfti að gera út frá óskalista starfsmanna. Kröfum var forgangsraðað og ákveðið að velja Oracle sem hryggsúluna í kerfinu. Omnis Studio varð fyrir valinu sem notendaviðmót. Það tók um 6 mánuði að koma kerfinu á legg og í notkun og síðan fóru um 3 mánuðir í að fínpússa og uppfylla óskalista. Kjarna skráningareingar kerfisins voru forritaðar í PL/SQL en það hefur reynst mjög farsæl ákvörðun að sögn Stuart McLean yfirmanns tölvudeildar Resort Properties og XL hotels. Kerfið hefur byggst utanum þann kjarna sem byggður var á þessum tíma og fjöldi annara kerfa tengjast nú þessu kerfi og byggja á áreiðanleika þess. |
| < Prev | Next > |
|---|






