| Eru kerfismálin að taka upp tímann þinn? |
|
Þarft þú að taka ákvarðanir um tæknimál en vilt fá upplýsingarnar sniðnar út frá viðskiptasjónarmiðum og á mannamáli? Þú þarft kannski að útlista upplýsingakerfin fyrir stjórn eða yfirmanni og útskýra fjárfestingar í hugbúnaði og vélbúnaði. Hvers vegna er kerfi X valið en ekki Y eða Z.
Ertu að móta stefnu næstu ára í upplýsingakerfum og vilt tengja stefnuna við almenna viðskiptastefnu félagsins? Við getum hjálpað þér að koma þessu niður á blað og gott betur. Þú getur lækkað raunkostnað með því að fá raunhæfar kostnaðaráætlanir miðað við raunhæfan búnað/þjónustu. Viltu t.d. bera saman kostnað, kosti og galla kerfisleigu/kerfisveitu við það að reka eigin upplýsingakerfi? Er kerfisleiga raunhæfur kostur fyrir þitt félag? Þegar stefnan og tæknin hefur verið ákveðin þarf að finna bestu kjörin á markaðinum. Allt eftir umfangi innkaupana þarf hugsanlega að fara í útboð. Minni innkaup kalla á einfaldari aðferðir en það sem skiptir máli í báðum tilfellum er að bera saman alla þætti svo sem verð, kosti og þjónustu svo hægt sé að fá heildarmynd af dæminu með sem flestar breytur útfylltar og sem fæstar í óvissu. Það er margs að spyrja en sé vel spurt getur fengist töluverður langtíma sparnaður. Hugsanlega getum við nýtt fyrirliggjandi búnað betur, framfarirnar gætu falist í að kenna starfsfólkinu betur á fyrirliggjandi tækni. Virðingarfyllst, Ólafur GarðarssonÍkon ehf. |
| < Fyrri | Næsta > |
|---|




















