pic18.jpg
Maison
Tungumál - Language - Parle

Eru kerfismálin að taka upp tímann þinn? Version imprimable Suggérer par mail
There are no translations available

Þarft þú að taka ákvarðanir um tæknimál en vilt fá upplýsingarnar sniðnar út frá viðskiptasjónarmiðum og á mannamáli? Þú þarft kannski að útlista upplýsingakerfin fyrir stjórn eða yfirmanni og útskýra fjárfestingar í hugbúnaði og vélbúnaði. Hvers vegna er kerfi X valið en ekki Y eða Z.

Ertu að móta stefnu næstu ára í upplýsingakerfum og vilt tengja stefnuna við almenna viðskiptastefnu félagsins? Við getum hjálpað þér að koma þessu niður á blað og gott betur. Þú getur lækkað raunkostnað með því að fá raunhæfar kostnaðaráætlanir miðað við raunhæfan búnað/þjónustu. Viltu t.d. bera saman kostnað, kosti og galla kerfisleigu/kerfisveitu við það að reka eigin upplýsingakerfi? Er kerfisleiga raunhæfur kostur fyrir þitt félag?

Þegar stefnan og tæknin hefur verið ákveðin þarf að finna bestu kjörin á markaðinum. Allt eftir umfangi innkaupana þarf hugsanlega að fara í útboð. Minni innkaup kalla á einfaldari aðferðir en það sem skiptir máli í báðum tilfellum er að bera saman alla þætti svo sem verð, kosti og þjónustu svo hægt sé að fá heildarmynd af dæminu með sem flestar breytur útfylltar og sem fæstar í óvissu. Það er margs að spyrja en sé vel spurt getur fengist töluverður langtíma sparnaður. Hugsanlega getum við nýtt fyrirliggjandi búnað betur, framfarirnar gætu falist í að kenna starfsfólkinu betur á fyrirliggjandi tækni.

Virðingarfyllst,

Ólafur Garðarsson
Íkon ehf.
 
< Précédent   Suivant >
Maison Project History About us News and annoncements Search site