 Byrjaði á tækniaðstoð við notendur en var fljótlega gerður kerfisstjóri (DBA) og aðalhönnuður innri gagnagrunna hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Omnis Software Inc. (Raining Data í dag) í San Carlos í Kaliforníu (Sílikón dalur suður af San Francisco).
Gerður yfirkerfisstjóri um tíma og sá um ráðningu arftaka og flutning kerfisdeildar milli borga innan Sílikón dals. Uppsetning á rauntíma tengingu Oracle gagnagrunna milli Englands og Kaliforníu.
Á meðal einstakra kerfa sem gerð voru eða endurbætt af Ólafi eru IGOR fyrir tæknilegan stuðning við viðskiptavini, Mailman fyrir utanumhald tölvupóstkerfis, Serializer færður yfir í vefrænt umhverfi með intranet aðgang beggja vegna Atlandshafs ofl. |