pic6.jpg
Forsíða arrow Um Íkon
Tungumál - Language - Parle

Um Íkon

Stefnan
Íkon ehf.  var stofnað 1988 af nokkrum áhugasömum tölvumönnum. Aðaleigandi fyrirtækisins, Ólafur Garðarsson, hefur stundað tölvuþjónustu og forritun á Íslandi og víðar síðan 1985. Starfsemi félagsins skiptist sem sagt í þrjú megin svið sem vinna saman: Kerfisþjónusta, hugbúnaðarþróun og vefhýsing. Markmiðið er að vera í fremstu röð á þessum þremur sviðum en okkar reynsla er að þau styðja hvert annað til hámarks gæða.

Sagan
Reynslan spannar öll helstu stýrikerfin (Windows, Macintosh og Unix/Linux). Við byrjuðum í Macintosh heiminum með námskeið, forritun og fleira en starfsemin færðist meira og meira yfir í Windows stýrikerfin með árunum. Síðustu ár höfum við unnið mikið með Linux stýrikerfi, sérstaklega í vefhýsingarþjónustunni undir vörumerkinu EDAL.NET. Sérgrein okkar er gagnagrunnar eins og Oracle en við vinnum einnig með MS-SQL, MySql grunna og aðra gagnagrunna. Kerfin sem hafa verið hönnuð á vegum Íkon eru margvísleg og í nánast öllum atvinnugreinum íslensks atvinnulífs en einnig fyrir erlenda aðila. Árið 2005 var fjárfest í húsnæði fyrir starfsemina miðsvæðis í Kópavogi með frábæru aðgengi að helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins. Vefhýsingin undir merkinu edal.net hófst 2003 og hefur smám saman undið upp á sig og er orðin mikilvægur þáttur í rekstrinum. Í febrúar 2006 byrjuðum við samstarf við nýja kerfisveitu í Bandaríkjunum um hýsingu vefþjóna en við erum að vinna í að samþætta vefhýsinguna við kerfi innanhúss hjá okkur til að bjóða viðskiptavinum fleiri valkosti á sviði vef- og kerfishýsinga.

Framundan
Kerfisþjónustan hefur um árabil verið helsta tekjulind félagsins en kerfisþjónustan fer mjög vel saman við vefhýsinguna og hugbúnaðarþróunina. Kerfisþjónustan gefur okkur mikilvægt innsæi í þann veruleika sem viðskiptavinirnir búa við og gefur okkur þannig kost á að sjá margar raunhæfar leiðir til framfara hjá þeim. Í kerfisþjónustunni leggjum við áherslu á að við flytjum ekki inn hugbúnað eða vélbúnað og leitum sem mest til þeirra sem sérhæfa sig í slíku. Félagið er óháð innflytjendum og framleiðendum og við getum veitt ráðgjöf byggða á reynslu en án hagsmunaárekstra. Í stærri útboðum förum við kerfisbundið í að hámarka gæði fyrir fjárfestinguna.

Vefhýsingin hefur nánast tvöfaldast í veltu árlega frá upphafi og stefna okkar er að stækka hlut hennar enn frekar eins og kostur er. Við veitum öðrum fyrirtækjum á þessu sviði verðuga samkeppni og markaðsaðhald en stefnum á að vera ávalt í fremstu röð hágæða vefþjónustu.

Reynsla okkar og þekking í hugbúnaðarþróun hefur komið sér afar vel við kerfisþjónustuna og vefhýsinguna. Með hugbúnaðarþróuninni veitum við viðskiptavinum okkar oft þessa viðbót sem á vantar til að ná alla leið. Við erum fyrst og fremst að leysa mál sem aðrir hafa ekki þegar leyst eða búa til viðbætur sem uppfylla það sem á vantar til að komast sem næst framsettu markmiði og oft komumst við lengra en viðskiptavinurinn reiknaði með. Við höfum áhuga og ánægju af þróunarvinnu af þessu tagi en það er sérstaklega gaman að koma viðskiptavinum ánægjulega á óvart. Við lifum fyrir það.

 
< Fyrri   Næsta >

MEÐAL VIÐSKIPTAVINA 


  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga




Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...