| Um Íkon |
|
|
|
There are no translations available Stefnan Sagan Framundan Vefhýsingin hefur aukist í veltu árlega frá upphafi og stefna okkar er að stækka hlut hennar enn frekar eins og kostur er. Við veitum öðrum fyrirtækjum á þessu sviði verðuga samkeppni og markaðsaðhald en stefnum á að vera ávalt í fremstu röð hágæða vefþjónustu. Hugbúnaðarveitan hefur verið í þróun í nokkur ár en áherslan er á að nota sem mest frjálsan, opinn hugbúnað. Launakerfið eLaun var fyrsta kerfið sem við gáfum út með þessum hætti og jafnframt hættum við að dreifa því með hefðbundnum hætti. Viðskiptavinir hafa nú eingöngu aðgang að eLaun í gegn um hugbúnaðarveituna. Reynslan lofar góðu, öryggi hefur aukist, hagkvæmni hefur aukist og tekjur félagsins eru tryggari. Reynsla okkar og þekking í hugbúnaðarþróun hefur komið sér afar vel við kerfisþjónustuna, hugbúnaðarveitu og vefhýsinguna. Með hugbúnaðarþróuninni veitum við viðskiptavinum okkar oft þessa viðbót sem á vantar til að ná alla leið. Við erum fyrst og fremst að leysa mál sem aðrir hafa ekki þegar leyst eða búa til viðbætur sem uppfylla það sem á vantar til að komast sem næst framsettu markmiði og oft komumst við lengra en viðskiptavinurinn reiknaði með. Við höfum áhuga og ánægju af þróunarvinnu af þessu tagi en það er sérstaklega gaman að koma viðskiptavinum ánægjulega á óvart. Við lifum fyrir það. |
| < zurück | weiter > |
|---|





About us 
