pic6.jpg
Home arrow About us arrow Employees arrow Hermann S. Jónsson
Tungumál - Language - Parle

Hermann S. Jónsson Drucken E-Mail

Hermann hefur sérhæft sig í notendaskilum samanber eftirfarandi:

Cand.Mag. (candidatus magisterii) - Kandidatuddannelse i Humanistisk Datalogi
M.A. (Master of Arts) - Master Programme in Human Centered Informatics
Háskólinn í Álaborg, Danmörk.

"Það sem ég vænti af starfi mínu hverju sinni er að vinna við krefjandi verkefni og að starfsánægja sé hluti af mínu vinnuumhverfi. Heildarmyndir eru mér mjög mikilvægar. Með því að setja verkefni í stærra samhengi er hægt að ákvarða tíma og pening sem réttlætanlegt er að nota í verkefnið."

Hermann hefur langa reynslu af hönnun og innleiðingu hugbúnaðarkerfi m.a. hjá RÚV þar sem hann vann í 10 ár. Þess má geta að Ólafur, eigandi Íkon ehf kynntist Hermanni fyrst þegar Íkon ehf tók að sér hugbúnaðarverkefni fyrir RÚV, snemma á tíunda áratuginum. Leiðir lágu svo saman aftur 2009 þegar við fréttum að Hermann væri atvinnuleitandi svo við ákváðum að láta ekki tækifærið til að njóta reynslu hans og menntunar fram hjá okkur fara.

Hermann er tveggja barna faðir og er kvæntur Bergljótu Snorradóttur. Þau búa í Hafnarfirði.

Hann vildi láta birta þessa mynd hér til hægri á starfsmannasíðunni sem portret. Sú málamiðlun náðist að hún fengið að fylgja með. Eitthvað fylgdi með frá honum um að notagildi hans væri sambærilegt en við tjáum okkur ekki um það að svo stöddu.

 

 
< zurück   weiter >
Home Project History About us News and annoncements Search site