| Birgir Þór Halldórsson |
|
"Ég fæddist og ólst upp í Borgarnesi þar sem ég bjó fyrstu 12 ár mín áður en ég flutti ásamt fjölskyldu minni til Ísafjarðar og bjó þar þangað til janúar 2007 þegar ég flutti til Reykjavíkur í leit að frægð og frama. Er sonur hjónanna Guðrúnar Birgisdóttur og Halldórs Guðlaugssonar. Systkini mín eru tvö, Ása Rut (fædd 1981) og Pálmar Freyr (fæddur 1987)." Birgir Þór tekur að sér vefforritun hjá Íkon ehf. Verkefni hans eru á tveimur megin sviðum félagsins, þjónustu við viðskiptavini Eðalnet (edal.net) vefhýsingar og vefforritun fyrir hugbúnaðarveitu fyrirtækisins. Eins og sést á myndinni er Birgir óhræddur við að óhreinka sig aðeins þegar hann keppir að settu marki. Bara
til að fyrirbyggja misskilning að þá er litarhaft hans á þessari mynd
ekki fengið með sólböðum heldur kom annarskonar bað við sögu.
Birgir trúir á að heilbrigð sál búi í hraustum líkama og stefnir á veraldar yfirráð. Vinnufélagarnir vona að hann staldri samt við í nokkur ár hér hjá Íkon áður en fleiri drekar eru vegnir. |
| Næsta > |
|---|





Birgir Þór starfaði hjá Pólnum Ísafirði fyrir árið 2000 en hefur
starfað við vefforritun frá árinu 2000, þar á meðal fyrir Snerpu ehf.
Eins og sést á myndinni er Birgir óhræddur við að óhreinka sig aðeins þegar hann keppir að settu marki. Bara
til að fyrirbyggja misskilning að þá er litarhaft hans á þessari mynd
ekki fengið með sólböðum heldur kom annarskonar bað við sögu.