pic47.jpg
Forsíða arrow Blogg arrow Ólablogg arrow Skrifaðu þingmönnum
Tungumál - Language - Parle

Skrifaðu þingmönnum Prenta Netfang
Bloggað - Ólablogg

Það er fátt eins vannýtt af okkur eins og vefur Alþingis og sú staðreind að netföng þingmanna eru þar tiltæk öllum til afnota. Ef við ætlum að stunda virkt lýðræði eigum við í það minnsta að senda þeim "tóninn" er það ekki svo? :o)

Hérna eru netföngin tiltæk á handhægan hátt. Afritaðu netföngin og skeyttu þeim í bcc reitinn í nýjan póst í tölvupóstforritinu þínu. Skrifaðu þín skilaboð og smelltu á "Send". Allir þingmennirnir fá þar með skilaboðin beint frá þér. Það þarf ekki að panta viðtalstíma eða neitt vesen.

Tvö góð ráð til að ná athygli þingmanna:

  • Vertu kurteis, forðastu rætni og dónaskap. Spyrðu þig hvernig skilaboðum þú mundir helst taka mark á.
  • Hafðu textan meitlaðann eftir bestu getu. 10 A4 blaðsíður þurfa að vera mjög áhugaverðar til að halda athygli lesandans. Oftast er hægt að koma skoðun eða röksemdafærslu frá sér í styttra máli en svo.

Eftirfarandi bréf var sent til alþingismanna og fyrsta svar þingmanns fylgir á eftir:

Subject: Skjaldborg um heimilin

Ég vil vekja athygli þingmanna á eftirfarandi undirskriftasöfnun.

www.heimilin.is

Virðingarfyllst,

Ólafur Garðarsson

-----------------Svar--------------

Birt með leyfi þingmannsins

Sæll Ólafur
Takk fyrir þetta frumkvæði, það er rétt að standa þarf vaktina áfram varðandi heimilin.
Áfram er verið að skoða greiðsluaðlögunar-tillögur, sem þýðir heimild fyrir þá sem eru í vandræðum að ganga til samninga um niðurfærslu lána (afskrift) í samningum sem fara eftir ákveðnum reglum.
Í öðru lagi er verið að skoða hvort og þá hvernig eigi að heimila eigendum að nýta séreignarsparnað og auðvitað er áfram verið að skoða með hvaða hætti er hægt að bregðast við verðbólguskotinu (sem er ennþá óþekkt) og eru þá auðvitað allar tillögur sem nefndar eru á síðu ykkar til skoðunar.  Loks þarf að skoða hvernig myntkörfulánin verða gerð upp á þá hvenær.

Þetta er til viðbótar fjölmargra aðgerða sem gripið hefur verið til nú þegar.

Því miður tekur þetta allt sinn tíma og því ekki hægt að gefa nein loforð um lausnir að svo stöddu.
Sent til upplýsingar um leið og tekið er undir mikilvægi þess að standa verður vörð um heimilin.
Bestu kveðjur,

Guðbjartur Hannesson formaður félags- og tryggingarmálanefndar Alþingis

 
< Fyrri   Næsta >
Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...