pic24.jpg
Forsíða arrow Blogg arrow Ólablogg arrow Borgararnir
Tungumál - Language - Parle

Borgararnir Prenta Netfang
Einkunnargjöf notenda: / 2
AfleitBest 
Skrifað af Ólafur Garðarsson   
mánudagur, 01 desember 2008

Það er alveg sama hvernig við lítum á málið, það erum við, þjóðin sem borgum brúsann. Það erum við sem auður þessa lands er byggður á. Ekki bara það. Við þurfum að átta okkur á að sameiginlega erum VIÐ auðlegðin. Það erum við sem traustið var byggt á.

Hreinsum til hjá okkur, borgum skuldirnar og leggjum grunn að framtíð fyrir börnin okkar. Endurheimtum traustið sem okkur var sýnt en látum það ekki aftur í hendurnar á spjátrungum og leyniklíkum. Tökum okkar ábyrgð og látum þá sem við kusum sem fulltrúa okkar bera sína með því að fela þeim önnur störf við hæfi þar sem það á við. Nokkrir þurfa kannski að starfa við gerð bifreiðamerkinga, það er ekki alslæmt.

Eitt er það sem við getum ekki leyft okkur að gera. Það er að láta þá eina sem voru svo óheppnir að kaupa sér húsnæði eða skipta úr minna í stærra húsnæði á síðustu 5 til 10 árum borga allt saman. Ef ekkert er að gert sitja þúsundir uppi með skuldir sem nema brúttó ævilaununum eða þaðan af meira.

Það eru ekki þeir samningar sem þau stofnuðu til í góðri trú. Í þessu máli þurfum við þjóðarsátt. Hinn kosturinn er stórfelld eignaupptaka, landfótti, þrældómur og niðurlæging. Tvær þjóðir, þeir heppnu sem höfðu komið sínu í var og hinir óheppnu, að meirihluta ungt fólk með börn. Bræður, systur, börn og barnabörn, vinir, starfsfélagar. Dæmd til að velja milli þrældóms og landflótta. Hverjir sitja uppi með tómar eignirnar og skuldirnar á hvorn vegin sem færi? Bankarnir. Hver ber ábyrgð á bönkunum núna? Ríkið. Hverjir eru ríkið?

Það skiptir öllu máli fyrir bankana að halda áfram að fá borgað frá borgurunum. Ríkið getur fyllt bankana af peningum sem fengust að láni frá IMF og fleirum en ef borgaranir hætta að borga og fara eru bankarnir svo gott sem dauðir fyrr eða síðar. Aðgerðir stjórnvalda bera þess mjög merki að það eigi að halda borgurunum þægum en ekki leysa nein mál fyrir þá í raun og veru. Ef borgararnir sameinast um málstað er voðinn vís. Ef borgararnir hætta að borga er voðinn vís. Hagsmunir núverandi valdhafa standa og falla með því að takast að einangra borgarana hvern frá öðrum. Ef gjaldfellingarnar standa yfir í nógu langan tíma tekst kannski að selja eignirnar fyrir viðunandi verð og skjóta hinum skelk í bringu. Halda þeim hræddum svo þeir borgi. Jafnvel þó þeir eigi ekki eina einustu von um að grynka á skuldunum, puðandi alla sína ævi.

Góðar stundir,

Ólafur Garðarsson

 
< Fyrri   Næsta >
Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...