pic27.jpg
Home arrow About us arrow Customer testemonials arrow Verkmenntaskólin á Akureyri
Tungumál - Language - Parle

Verkmenntaskólin á Akureyri Drucken E-Mail
There are no translations available

Ég er búinn að vera í samvinnu við þá hjá Íkon og Stefnu við að setja upp Linux Terminal Server Project (disklausar útstöðvar).

Við erum að keyra tvo sýndar Línux netþjóna á XEN búnaði frá Novell. Annar netþjónninn er að keyra vef skólans en hinn er að keyra Terminal server hugbúnaðinn. Sá netþjónn notar Ubuntu server hugbúnað og útstöðvarnar sem tengjast honum keyra Edubuntu hugbúnaðinn. Ég er búinn að vera á horfa á lausn af þessu tagi í langan tíma og fannst nú vera rétti tíminn til að gera hana að veruleika. Áður en ég gat tekið þessa lausn í notkun þurfti að leysa ýmis smámál eins og auðkenningu inn á núverandi kerfi.

Það var leyst með því að láta notendur á útstöðvunum (Linuxinn) auðkenna sig við LDAP þjón á Novellnum. Þegar komið var yfir þennan þröskuld var ekkert til fyrirstöðu lengur. Ég var búinn að gera svipaða hluti fyrir tveimur árum síðan en þá var ég að hugsa um að láta stakar vélar logga sig inn á Novell kerfið. Féll frá þessari lausn af ýmsum ástæðum. Eins og staðan er núna er kerfið komið í gang, notendur auðkenna sig með aðgangs og lykilorði á sama hátt og á Windows útstöðvum og í fyrsta skipti sem það gerist er búinn til prófíll fyrir notanda sem inniheldur heimasvæði og þær stillingar sem ég vil að notandi fái á útstöðina. Þetta er að svínvirka og ég kem til með á næstu dögum að fjölga stórlega útstöðvum af þessu tagi á netinu hjá mér. Þær eru nú orðnar eitthvað á annan tuginn og kemur til með að fjölga verulega í náinni framtíð. Kosturinn við þetta er að ég læt útstöðvarnar keyra disklausar og bútta þær upp af netinu og ég get ekki betur séð en að 10 ára gamlar IBM vélar sem ég á í haugum í kjallaranum fái þarna endurnýjun lífdaga og gefi nýrri félum ekkert eftir hvað varðar hraða í vinnslu.
Ég á eftir að fylgjast vel með notkun nemenda á þessum vélum á næstunni og svara fúslega fyrirspurnum sem ykkur kann að langa til að fá svör við.

Miðað við hvernig þetta er að ganga nú þegar get ég sagt að þetta er tær snilld.

Adam Óskarsson

 
< zurück   weiter >
Home Project History About us News and annoncements Search site