pic17.jpg
Forsíða
Tungumál - Language - Parle

Sýndarvélar Prenta Netfang

Sýndarvélar, sýndartölvur eða tölvuhermar (Virtual Computers) eru tölvur sem starfa innan annara tölva í einskonar sýndar eða gerfi umhverfi. Sérstakur hugbúnaður myndar rými innan tölvunnar sem hermir eftir hefðbundnum vélbúnaði. Inn í rýmið er hlaðið venjulegu heilu stýrikerfi sem verður þar með gestur þess stýrikerfis sem eiginlega vélin er keyrð á. Gera má mörg slík rými innan einnar tölvu og deila þau öll aðgangi að neti, skjá og öðru innan tölvunnar. Undanfarin ár hafa sýndartölvur rutt sér mjög til rúms í tölvuheiminum.

Sérstaklega á þetta við um vefþjóna og netþjóna og slík tæki. Tölvumenn nota einnig sýndarvélar mikið við prófanir af ýmsu tagi. Mikill tími getur sparast við uppsetningar og áhættan er mun minni fyrir tæknimanninn. Mjög auðvelt er að bakka í eldri útgáfu áður en tilteknar breytingar voru gerðar o.s.frv. Þetta hefur flýtt mjög fyrir þróunarstafi. Nú er svo komið að svo auðvelt er að setja upp sýndarvél á einmenningstölvum að "óbreyttir" notendur geta sett upp og notað tæknina.

Ófáir Macintosh notendur hafa t.d. sýndarvél á sinni vél til að hafa aðgang að ýmsum Windows hugbúnaði sem ekki eru fáanleg með góðu móti á OSX (Macintosh stýrikerfið heitir OSX). Sumir hafa tekið Windows stýrikerfin af tölvunum sínum og sett Linux í staðinn en sett svo Windows aftur upp innan Linux sem sýndarvél. Einnig má keyra t.d. Vista á tölvunni sinni og hlaða XP upp í sýndarumhverfi auk Linux véla. Þannig hafa menn aðgang að 3 eða fleiri stýrikerfum í einu á einni og sömu vélinni. Samhæfisvandamál verða léttvæg við þessar aðstæður og nánast engin takmörk um hvaða hugbúnað má nota.

Nýlega byrjaði VMware að gefa ESXi sýndarvélakerfið sitt frítt. VirtualBox (Sun) hafði áður gefið VBox frelsi þ.e. gert það að Open Source verkefni. Framlög VMware og Sun eru stórkostlegur hvalreki fyrir tölvunotendur en tæknimenn (tölvunördar) hafa fyrst og fremst notfært sér frumkvæði þessara aðila. Þeir eru að notfæra sér þessa tækni til að flýta stórkostlega fyrir hugbúnaðarþróun en hún er að mörgu leiti á eftir þróun vélbúnaðarins sem slíks.

 
Næsta >
Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...