|
Tæknilegar kröfur fyrir Linux kerfisþjón |
|
Gott er að hafa kerfið á öflugri vél með 2GB innra minni eða meira. Fyrir 10 Linux Thin Client útstöðvar er gott að hafa minnst 1,5G á kerfisþjóninum. Vélin sleppur með eins kjarna Intel örgjörfa fyrir Linux miðað við 10 ústöðvar.
Lágmarks kröfur kerfisþjóns:
- Nýleg Intel vél (ekki eldri en árgerð 2006) sem styður Linux
kernel útgáfu 2,6 og nýrri (AMD örgjörfarnir ganga einnig samkvæmt okkar prófunum). Því fleiri örgjörfar og eða örgjörfakjarnar
því betra en vel er hægt að komast af með eins örgjörfa vél með einum
kjarna ef samtímanotendur eru ekki yfir 10.
Engin töfra formúla er til fyrir æskilegu afli og þarf að meta hvert
tilfelli fyrir sig út frá væntanlegri notkun/álagi.
- 1GB innra minni (RAM) en því meira því betra.
- 20GB eða meira diskpláss, mælum með spegluðum diskum (t.d. Raid 1, 5 eða 10) eða tveimur diskum þar sem annar geymir sjálfvirkt afrit.
- Tvö 100Mb eða stærra netkort. Möguleiki er að komast af með eitt netkort undir tilteknum kringumstæðum.Setja má fleiri en 2 til að dreifa álaginu.
- Hafa aðgang að skjá, mús og lyklaborði á kerfisþjón auk DVD drifs. Koma
má upp fjartengingu fyrir viðhald.
- Netkerfi sem uppfyllir CAT5 staðal fyrir útstöðvar. Gott er að útstöðvarnar séu með 100Mb netkort.
Hér er dæmi um ágætis vél fyrir Linux Terminal Server |