|
Ávinningur ehf sérhæfir sig í viðskiptakerfum fyrir íslenskan markað. Þeir eru umboðsmenn og þjónustuaðilar fyrir Sage Pastel viðskiptakerfin og hafa þýtt þau yfir á íslensku og aðlagað fyrir íslenskar aðstæður. Þeir hafa valið Álaun kerfið frá Íkon ehf til að selja með Sage Pastel kerfunum sínum til að sjá um launaútreikningana. Við höfum aðlagað Álaun eftir þeirra óskum til að senda launafærslur yfir í Sage Pastel fjárhagsbókhaldið.
Kerfin frá Ávinningi henta íslenskum aðstæðum sérlega vel vegna þess að
þau eru hönnuð með lítil og meðalstór fyrirtæki í huga og bjóða uppá
eiginleika sem hingað til hafa einungis staðið notendum mun stærri og
dýrari kerfa til boða. Eftir sem áður anna þau þörfum stórra fyrirtækja
en sneyða framhjá þeim flækjustigum sem jafnan vilja verða í hugbúnaði
sem hannaður er fyrir umtalsverða aðlögun og kostnaðarfreka
innleiðingu. Álaun kerfið passar því fullkomlega inn í vörulínuna hjá
Ávinning. Gunnar Óskarsson stýrir Ávinning en að baki honum stendur
fjöldi innlendra og erlendra samstarfsaðila sem stuðla að stöðugri
þróun á kerfunum og sterkri samkeppnisstöðu notenda. |