pic33.jpg
Forsíða
Tungumál - Language - Parle

Ástargaukur í heimsókn Prenta Netfang

Hjá okkur dvelur nú páfagaukur af tegundinni ástargaukur þ.e. dvergpáfi. Hann var að flögra hérna í portinu hjá Toyota að skoða notaða bíla þegar ég kom auga á hann (sunnudaginn 27. apríl). Eftir nokkurt flaut og japl og jaml og fuður ákvað gaukur að setjast á höfuðið á mér þar sem ég stóð í portinu.

Ég trítlaði með hann inn og hann hefur verið hjá okkur í góðu yfirlæti síðan. Þetta er afskaplega blíður fugl sem nartar blíðlega í eyrað á manni ef hann situr á öxlinni. Það var augljóslega nokkuð af honum dregið að vera úti í kuldanum og hann tók vel til matar síns. Hann er særður á fæti og eitthvað meira hruflaður, hugsanlega eftir kisu eða aðra fugla. Komi eigandi hans ekki í leitirnar er gauksa velkomið að búa hérna á skrifstofunni.

Ólafur

 
< Fyrri   Næsta >
Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...