pic49.jpg
Home arrow Project History arrow EFF og Klasi hf stækkun
Tungumál - Language - Parle

EFF og Klasi hf stækkun Drucken E-Mail
There are no translations available

Þegar þessi tvö félög, sem höfðu verið í sambúð í nokkurn tíma, ákváðu að flytja starfsemina í nýtt húsnæði, fólu þau Íkon ehf flutning og uppfærslu upplýsingakerfanna. Klasi mundi nú fá eigin netþjón og póstkerfi og slíkt en félögin yrðu áfram í náinni samvinnu og á sama nærneti.

Keyptur var nýr netþjónn fyrir Klasa sambærilegur og sá sem Eignarhaldsfélagið Fasteign hf (EFF) átti fyrir (IBM). Nýjasta útgáfan af Exchange var nú aðeins til í 64 bita útgáfu og þurfti því samhæft stýrikerfi. Eftir að kerfið var komið í gagnið komu í ljós ýmsir gallar í nýja Exchange og þurftum við að finna leiðir framhjá þeim. Það reyndist þrautaganga í sumum tilfellum en á endanum tókst að koma þessu saman. Rafræna skýrteinið fyrir dulkóðaðan vefaðgang reyndist erfiðast í uppsetningu en þarna hafði Microsoft tekist að flækja málin umtalsvert frá fyrri útgáfum stýrikerfisins. Seinna settum við einnig upp sérstaka vél fyrir Blackberry þjónustu fyrir starfsmenn auk vélar fyrir nýtt bókhaldskerfi EFF.

Húsnæði félaganna að Bíldshöfða 9 nær samanlagt yfir heila hæð en þeir gerðu kröfu um að hafa þráðlaust net sem hægt væri að hafa aðgang að allstaðar á hæðinni. Til að leysa þetta völdum við Airport tæknina frá Apple en með þeirri tækni gátum við sett upp miðlægan sendir og endurvarpa þannig að netið varð sterkt alstaðar á hæðinni. Dulkóðunin er WPA

Setja þurfti upp Eldvegg sem bæði gæti aðskilið þjónustu félaganna útávið, kvíjað þráðlausa netið af og gert öll þau samskipti möguleg sem þurfti án þess að fórna öryggi. Við völdum að setja upp Vyatta eldvegg og beini (router) en þetta er í raun sérstaklega útfært Linux stýrikerfi. Einfalt er að stækka kerfið ef á þarf að halda ýmist með fleiri netkortum eða nýjum vélbúnaði. Þessi búnaður hefur reynst mjög áreiðanlegur hjá þeim sem við höfum sett hann upp.

 
< zurück   weiter >
Home Project History About us News and annoncements Search site