|
Upplýsingakerfi EFF og Klasa |
|
|
|
 Við tókum að okkur kerfisstjórn upplýsingakerfa hjá Eignarhaldsfélaginu fasteign hf (EFF) í lok 2005. Þörf var á uppfærslu miðlægs netþjóns og við hófum þá vinnu vorið 2006. Klasi hf leigði húsnæði og aðgang að upplýsingakerfum af EFF á þeim tíma.
Okkur var nokkur vandi á höndum þar sem í notkun var Microsoft Small Business Server (MS-SBS) og þurftum við að afrita stillingar yfir á nýjan slíkan netþjón en Microsoft hefur greinilega ekki gert ráð fyrir slíku. Vélbúnaðurinn sem varð fyrir valinu var IBM xServer netþjónn með tvöföldum diskastæðum, tvöföldum spennugjafa og margvíslegum varakerfum. Þessir netþjónar hafa reynst afar vel, sérstaklega hvað varðar áreiðanleika vélbúnaðarins.
MS-SBS er hagkvæmt kerfi fyrir fámenn fyrirtæki og gerir þeim kleyft að halda úti upplýsingakerfi sem er almennt ekki á færi nema stærri fyrirtækja með tugum og hundruðum starfsmanna. Einn netþjónn nægir í verkefnið hjá þessum minni fyrirtækjum en í SBS Extended Edition er eldveggur og SQL gagnagrunnur innifalinn ásamt Exchange póstþjónustunni og miðlægu skráar/prentmiðlun.
Starfsmenn Eignarhaldsfélagsins fasteign hf styðjast af þunga við
tölvutæknina í daglegum rekstri félagsins. Það var því mikilvægt að
skiptin færu fram yfir helgi og helst engar truflanir yrðu á
starfseminni. Byrjað var á að undirbúa allt eins og best var á kosið
svo eiginleg vinna við yfirskiptinguna færi fram snurðulaust. Um leið
og geymslurými stækkaði og hraði jókst gaf nýji IBM netþjónninn okkur
kost á að stilla netþjóninum upp sem auka eldvegg gagnvart internetinu.
Þannig jókst öryggi til muna í ofanálag við aðrar framfarir. |