| Netcafé farfuglanna |
|
|
|
Eftir um 2ja ára notkun var ákveðið að bæta við tveimur tölvum og gera alla aðstöðu betri. Í upphafi prófuðum við hugbúnað frá Smartkort en færðum okkur síðar yfir í netcafé hugbúnað frá Antamedia en hann virkaði vel ef frá er talin slakar varnir gegn vefsíðum sem planta inn ormum og slíku (Spyware / Adware). Megin kosturinn við Antamedia kerfið er að viðskiptavinirnir kaupa einfaldlega miða með aðgangsnúmeri í hendurnar og svo ákveða þeir sjálfir hvenær þeir nýta sér mínúturnar sem þeir eiga inni. Reynt var að skipta um kerfi 2007 þ.e. yfir í sérstakan vélbúnað frá Zyxel sem virkaði sem gátt inn á internetið. Gáttin prentaði út tímamiða sem viðskiptavinir keyptu til að skrá sig inn á tölvurnar. Vegna einhvers galla í Zyxel búnaðinum urðum við að falla frá þessu kerfi og taka aftur upp Antamedia kerfið. |
| < Fyrri | Næsta > |
|---|






