pic38.jpg
Forsíða
Tungumál - Language - Parle

Netcafé farfuglanna Prenta Netfang

Við höfum um árabil veitt Bandalagi Íslandskra Farfugla (BÍF) kerfisþjónustu en eitt af verkefnum okkar hefur verið að byggja upp og viðhalda netcafé fyrir gesti og gangandi í Farfuglaheimilinu í Laugardal. Upphaflega voru settar upp 2 tölvur en þær voru fljótar að borga sig upp.  

Eftir um 2ja ára notkun var ákveðið að bæta við tveimur tölvum og gera alla aðstöðu betri. Í upphafi prófuðum við hugbúnað frá Smartkort en færðum okkur síðar yfir í netcafé hugbúnað frá Antamedia en hann virkaði vel ef frá er talin slakar varnir gegn vefsíðum sem planta inn ormum og slíku (Spyware / Adware). Megin kosturinn við Antamedia kerfið er að viðskiptavinirnir kaupa einfaldlega miða með aðgangsnúmeri í hendurnar og svo ákveða þeir sjálfir hvenær þeir nýta sér mínúturnar sem þeir eiga inni.

Reynt var að skipta um kerfi 2007 þ.e. yfir í sérstakan vélbúnað frá Zyxel sem virkaði sem gátt inn á internetið. Gáttin prentaði út tímamiða sem viðskiptavinir keyptu til að skrá sig inn á tölvurnar. Vegna einhvers galla í Zyxel búnaðinum urðum við að falla frá þessu kerfi og taka aftur upp Antamedia kerfið.

 
< Fyrri   Næsta >
Forsíða Verkefnasaga Um Íkon Fréttir og tilkynningar Leit...