Skoðanir þær er hér koma fram eru persónulegar skoðanir Ólafs Garðarssonar. Þessi skrif verða færð á eigið vefsvæði þegar tími gefst til.
|
|
Ólablogg
|
|
Skrifað af Ólafur Garðarsson
|
|
mánudagur, 08 desember 2008 |
|
Það er fátt eins vannýtt af okkur eins og vefur Alþingis og sú staðreind að netföng þingmanna eru þar tiltæk öllum til afnota. Ef við ætlum að stunda virkt lýðræði eigum við í það minnsta að senda þeim "tóninn" er það ekki svo? :o)
Hérna eru netföngin tiltæk á handhægan hátt. Afritaðu netföngin og skeyttu þeim í bcc reitinn í nýjan póst í tölvupóstforritinu þínu. Skrifaðu þín skilaboð og smelltu á "Send". Allir þingmennirnir fá þar með skilaboðin beint frá þér. Það þarf ekki að panta viðtalstíma eða neitt vesen.
Tvö góð ráð til að ná athygli þingmanna:
- Vertu kurteis, forðastu rætni og dónaskap. Spyrðu þig hvernig skilaboðum þú mundir helst taka mark á.
- Hafðu textan meitlaðann eftir bestu getu. 10 A4 blaðsíður þurfa að vera mjög áhugaverðar til að halda athygli lesandans. Oftast er hægt að koma skoðun eða röksemdafærslu frá sér í styttra máli en svo.
Eftirfarandi bréf var sent til alþingismanna og fyrsta svar þingmanns fylgir á eftir: |
|
Lesa meira...
|
|
Ólablogg
|
|
Skrifað af Ólafur Garðarsson
|
|
mánudagur, 01 desember 2008 |
|
Það er alveg sama hvernig við lítum á málið, það erum við, þjóðin
sem borgum brúsann. Það erum við sem auður þessa lands er byggður á.
Ekki bara það. Við þurfum að átta okkur á að sameiginlega erum VIÐ
auðlegðin. Það erum við sem traustið var byggt á.
Hreinsum til hjá
okkur, borgum skuldirnar og leggjum grunn að framtíð fyrir börnin
okkar. Endurheimtum traustið sem okkur var sýnt en látum það ekki aftur
í hendurnar á spjátrungum og leyniklíkum. Tökum okkar ábyrgð og látum
þá sem við kusum sem fulltrúa okkar bera sína með því að fela þeim
önnur störf við hæfi þar sem það á við. Nokkrir þurfa kannski að starfa við gerð
bifreiðamerkinga, það er ekki alslæmt. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Ólablogg
|
|
Skrifað af Ólafur Garðarsson
|
|
sunnudagur, 30 nóvember 2008 |
|
Silfur Egils á RÚV sunnudaginn 30. nóv. 2008 var fróðlegur þáttur. Í þáttinn mættu óvenju margir með mikilvægar upplýsingar og athyglisverðar skoðanir.
Við þurfum að endurskoða margt í samfélaginu okkar og þar á meðal okkar rómuðu lífeyrissjóði og hvernig þeim er stjórnað. Ragnar Þór Ingólfsson benti á ýmsar brotalamir í þessu kerfi og hvernig við værum í raun betur sett að setja þessa peninga einfaldlega á einkareikninga. |
|
Lesa meira...
|
|
|