|
Birgir Þór starfaði hjá Pólnum Ísafirði fyrir árið 2000 en hefur starfað við vefforritun frá árinu 2000, þar á meðal fyrir Snerpu ehf.
"Ég fæddist og ólst upp í Borgarnesi þar sem ég bjó fyrstu 12 ár mín áður en ég flutti ásamt fjölskyldu minni til Ísafjarðar og bjó þar þangað til janúar 2007 þegar ég flutti til Reykjavíkur í leit að frægð og frama. Er sonur hjónanna Guðrúnar Birgisdóttur og Halldórs Guðlaugssonar. Systkini mín eru tvö, Ása Rut (fædd 1981) og Pálmar Freyr (fæddur 1987)."
Birgir Þór tekur að sér vefforritun hjá Íkon ehf. Verkefni hans eru á tveimur megin sviðum félagsins, þjónustu við viðskiptavini Eðalnet (edal.net) vefhýsingar og vefforritun fyrir hugbúnaðarveitu fyrirtækisins.
Eins og sést á myndinni er Birgir óhræddur við að óhreinka sig aðeins þegar hann keppir að settu marki. Bara til að fyrirbyggja misskilning að þá er litarhaft hans á þessari mynd ekki fengið með sólböðum heldur kom annarskonar bað við sögu. |
|
Lesa meira...
|
|
Hermann hefur sérhæft sig í notendaskilum samanber eftirfarandi:
Cand.Mag. (candidatus magisterii) - Kandidatuddannelse i Humanistisk Datalogi
M.A. (Master of Arts) - Master Programme in Human Centered Informatics
Háskólinn í Álaborg, Danmörk.
"Það sem ég vænti af starfi mínu hverju sinni er að vinna við krefjandi verkefni og að starfsánægja sé hluti af mínu vinnuumhverfi. Heildarmyndir eru mér mjög mikilvægar. Með því að setja verkefni í stærra samhengi er hægt að ákvarða tíma og pening sem réttlætanlegt er að nota í verkefnið."
Hermann hefur langa reynslu af hönnun og innleiðingu hugbúnaðarkerfi m.a. hjá RÚV þar sem hann vann í 10 ár. Þess má geta að Ólafur, eigandi Íkon ehf kynntist Hermanni fyrst þegar Íkon ehf tók að sér hugbúnaðarverkefni fyrir RÚV, snemma á tíunda áratuginum. Leiðir lágu svo saman aftur 2009 þegar við fréttum að Hermann væri atvinnuleitandi svo við ákváðum að láta ekki tækifærið til að njóta reynslu hans og menntunar fram hjá okkur fara.
Hermann er tveggja barna faðir og er kvæntur Bergljótu Snorradóttur. Þau búa í Hafnarfirði. |
|
Lesa meira...
|
|
Ólafur er einn af stofnendum Íkon ehf. Ólafur hefur starfað við hugbúnaðarþróun og kerfisþjónustu frá 1985 en hans formlega menntun er Rafeindavirkjun og útskrifaðist hann með sveinspróf 1985. Eftir mörg og margvísleg verkefni á Íslandi við hugbúnaðarþróun og stofnun Íkon 1988 tók hann árið 1996 að sér verkefni við að þróa innri gagnagrunna Omnis Software Inc. í Bandaríkjunum. Hann kom aftur til Íslands 1999 og fór fljótlega til Tenerife þar sem honum bauðst að þróa kerfi til utanumhalds hótelreksturs. Það verkefni tók um tvö ár af og á en síðan þá hefur Ólafur einbeitt sér að uppbyggingu Íkon ehf. 2005 fjárfesti fyrirtækið í húsnæði að Nýbýlavegi 6 þar sem starfsemin er staðsett núna. |
|
Lesa meira...
|
|