eLAUN:
Eftirfarandi mynd sýnir helstu valmyndir kerfisins.

eLaun hefur verið í eiginlegri notkun frá því í desember 1994 bæði á Macintosh tölvur og undir Windows stýrikerfinu. Kerfið hefur komið mjög vel út þann tíma sem það hefur verið í notkun og staðist allar þær væntingar sem bornar voru til þess og gott betur. Notendurnir hafa hjálpað stórkostlega við að bæta kerfið en það er að mestum hluta afsprengi þeirra upplýsinga sem þeir gáfu á 9 ára ferli Omni-Laun 3. Launakerfið má tengja við fjárhagsbókhaldið Eðal-Bók 7 en notandinn hefur sjálfur yfirráð yfir því hvenær færslur eru fluttar á milli.